divur.bloggar.is
Game föstudaginn 4. maíDívurnar
Hæ hæ
Ég ætla að hafa partýið á föstudeginum 4. maí.
Mæting bara svona um 20:00 og allir mæta með það sem þeir vilja að drekka, hvort sem það verður kók eða eitthvað sterkara
Svo gæti verið sterkur leikur að enda bara í hnakkabænum Selfoss og gera einhverjar rósir
Veit að það eru einhverjir sem hafa óskað eftir fimmtudeginum en komst að því að föstudagurinn hentar mun betur hjá mér.
Þið hliðrið bara öllu örðu til svo að þið komist
Partýið er opið DÍVUM og VÍKINGUM
Sendi kannski e-mail á mannskapinn þegar nær dregur til að útskýra leiðina og þannig
Kv. Hulda partýdíva
Game eftir skil á lokaverkefni??? :)Dívurnar
HÆ HÆ DÍVUR og VÍKINGAR!!!!!!!!!Ég er að hugsa um að hafa smá hitting fyrir bekkinn heima hjá mér annað hvort fimmtudagskvöldið 3. maí eða föstudagskvöldið 4. maí. :)
Það eru alltaf allir að suða í mér að bjóða í heimsókn þannig að þar hafið þið það ;)
Hvernig lýst ykkur á þetta DÍVUR og VÍKINGAR? Endilega kommentiði og segið hvor dagurinn hentar ykkur betur :)
Kveðja
Hulda
Einn brandari í tilefni nýársins!!Dívurnar
Eldri kona var hjá tannlækni sínum og var frekar smeyk. Tannlæknirinn ákvað að reyna að létta lund hennar og segja henni einn brandara. Hann spyr hana: "Veistu hvernig latex hanskar eru búnir til?" Konan hristir hausinn, vantrúuð. "Það eru menn í Asíu sem dýfa hendinni ofan í pott fullan af sjóðandi latexi, svo taka þeir hendina upp og bíða eftir að gúmmíið þorni." Ekki fannst konunni þetta sniðugt og varð tannlæknirinn hálf vandræðalegur vegna þess. Nokkru síðar rekur konan upp skellihlátur og tannlæknirinn veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið og spyr konuna hvað sé svona sniðugt. "ha,ha,ha ég var nú bara að velta því fyrir mér hvernig þeir búa þá til smokkana!!"Hlakka til að sjá ykkur á ný í næstu viku
Kveðja
Ágústa
Mehígo 2007Dívurnar
Bara að minna ykkur á að borða ekki yfir ykkur af jólamatnum. Við viljum ekki líta svona út í Mexico
Hafið það annars voða gott yfir jólin og ég hlakka til að hitta ykkur allar á nýju ári!
Gústa
Bekkjarhittingur á næsta leyti?Dívurnar
Hæhæ!Ég tók einn svona bloggsíðurúnt og sá þá að bæði 1. og 2. ár eru búin að halda sín próflokadjömm, sumir oftar en einu sinni!! Eitthvað var lítið um það hjá okkur! Hvað er að gerast fyrir bekkinn sem var svo umtalaður í byrjun skólagöngu fyrir vitleysisgang að í manna minnum hafði ekki svo brjálað fólk komið í skólann:-) Þetta er nú heldur seint núna í rassinn gripið og jólin alveg að koma en ég legg til að við bætum eitthvað úr þessu á nýju ári!! Það sem ég get boðið upp á núna fyrir áramót er hið brjálæðislega jólaball í hnakkabænum sjálfum sem aldrei bregst!;-) Ekki amalegt að skella sér á það!:-)
Annars þarf hittingurinn ekkert að tengjast djúsi og djammi heldur bara gaman að koma saman og hafa gaman, virkja bekkjarandann:-)
Annars segi ég bara gleðileg jól og hafið það rosalega gott yfir hátíðirnar. Hittumst hress og kát á nýju ári

Au revoir
Ágústa
Saklaus heimildavinna eða hvað?!!Dívurnar
Ég hef sjaldan gúgglað jafn mikið og undanfarið fyrir þessa heilsuræktaráætlun. Ég fann helvíti góða síðu með æfingum og kaloríuteljara sem ég ætlaði að vitna í. Til hliðar var hægt að smella á mynd af manni, helköttuðum, að gera æfingar og ég gerði það. Þá opnuðust myndir af kviknöktum karlmönnum að gera ... tja það má kalla það æfingar. Ég hélt að kallinn sem var að bíta í eyrað á honum framan á væri þjálfarinn hans að grallarast.Hér er linkur fyrir þá sem vilja njóta.
http://www.superdrewby.com/fitness/dietlose.shtml
Sophie B
Finnu þú 4 villur?!Dívurnar

Hvað passar ekki á myndinni? Vegleg verðlaun í boði!! ![]()
Verkefnarugl!!Dívurnar
Jæja nú erum við alveg að drukkna í verkefnum og allir orðnir mjög stressaðir og pirraðir. Því er alveg tilvalið að gera þetta Janus-styleÞÚ ERT FRÁBÆR MANNESKJA. MUNDU AÐ LÍFIÐ HEFUR UPP Á MARGT AÐ BJÓÐA OG REYNDU AÐ NJÓTA ÞESS TIL HINS ÍTRASTA
Með svona gullmolum á dag, verða þessi verkefni ekkert mál!!!!
Good luck divas
Gústa
Slúður takk!!Dívurnar
Jæja stúlkur mínar. Ég komst ekki á Laugarvatn- Akademían í gær en ég vil fá allt mögulegt slúður frá gærkvöldinu beint í æð (eða í komment)!! Ekki skilja neitt eftir og ekkert er of sóðalegt ![]()
Sophie
Próflok eða hvað!Dívurnar
Hæhæ!
Þá eru prófin að mestu leyti búin en mikilverkefnavinna framundan! Það er samt sem áður góð tilfinning að vita til þess að í desember muni maður ekki sitja sveittur yfir bókum allan liðlangan daginn. Ég ætla að reyna að vera smá myndarleg húsmóðir og baka eina-tvær-þrjár smákökutegundir og dunda mér við hitt og þetta sem ég hef ekki leyft mér að hugsa um fyrr í mörg ár.
Ég gat því miður ekki séð mér fært að mæta á Friday´s on friday en ég er spennt að vita hvað var gert fram eftir kvöldi eða jafnvel nóttu![]()
Það verður líka nóg að gera í söfnun fyri útskriftarferð, til hinnar gullfallegu Mexícoborg! Það verður geggjað stuð að enda þar eftir lokaritgerðskeyrslu í vor. jæja, verð að hætta núna þar sem ég er að fara að baka fyrir kaffihúsakvöldið sem verður á þriðjudaginn!!!
Kveðja
Ágústa T.